Eign

Álfheimar 42, 104 Reykjavík
Verð:
25.500.000 kr. 
Tegund:
Fjölbýli
Herbergi:
5
 
Stærð:
127 m²
Inngangur:
Sameiginlegur
Svefnherbergi:
3
 
Brunabótamat:
20.300.000 kr. 
Hæðir í eign:
4
Baðherbergi:
1
 
Fasteignamat:
23.880.000 kr. 
Hæð:
1
Stofur:
2
 
Lýsing
Hóll fasteignasala kynnir mjög rúmgóða og vel staðsetta 5-6 herbegja íbúð í Álfheimum, Reykjavík. Íbúðin er á 1. hæð í góðu fjölbýli alls 127,4 fm. Stutt er í alla almenna þjónustu s.s. leik- og grunnskóla, Laugardalinn, verslanir og fleira.
TILBOÐ ÓSKAST - TILBOÐ ÓSKAST - TILBOÐ ÓSKAST - TILBOÐ ÓSKAST


Komið er inn í forstofu með fataskáp og parketi á gólfi. Eins er læstur skápur í sameign fyrir framan inngang sem tilheyrir íbúð.Tvær rúmgóðar og bjarta samliggjandi stofur , þaðan er útgengt út á suðursvalir . Eldhús rúmgott með upprunanlegri innréttingu og dúk á gólfi. Góður svefnherbergisgangur með miklu skápaplássi, parket á gólfi. Rúmgott svefnherbergi með skáp og dúk á gólfi. Barnaherbergin eru 2. Annað herbergið var áður tvö herbergi og er búið að gera eitt stórt úr því. Auðvelt að breyta aftur í tvö herbergi. Þar er teppi á gólfi og fataskápur. Hitt herbergið er gott með dúk á gólfi og fataskáp. Baðherbergi er með baðkari og sturtusetti, flísar á vegg og dúkur á gólfi. Í sameign er stór sameiginlegt þvottahús , hjóla- og vagnageymsla og sérgeymsla . Í sameign er stór garður með leiktækjum fyrir börn. Húsið var sprunguviðgert og málað fyrir nokkrum árum. Sameign var tekin í gegn árið 2008. Hússjóður er 15.000 kr. pr. mánuði.

Þetta er góð eign á eftirsóttum stað við Álfheima í Reykjavík þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, menntaskóla, Laugardalinn og margt fleira. Nánari upplýsingar gefur Hóll fasteignasala eða Björn Daníelsson fasteignasali í síma 595-9000 eða 849-4477. Einnig með tölvuposti holl@holl.is eða bjorn@holl.is



Til baka