Það sem seljendur þurfa að vita:
Yfirlýsing húsfélags
Skv. gildandi lögum er ekki heimilt að ganga frá kaupsamningi nema fyrir liggi yfirlýsing húsfélags þar sem upplýst er um greiðslustöðu hússjóðs, væntanlegar framkvæmdir o.fl. Ef þú hefur ekki nú þegar látið fylla út slíka yfirlýsingu þá getur þú fengið eyðublað hjá okkur á Hóli m.a. á þessari heimasíðu. Þú biður gjaldkera/formann húsfélagsins um að fylla yfirlýsinguna út og kemur henni til okkar sem fyrst.
Veðflutingur
Yfirtekur kaupandi allar veðskuldirnar? Ef ekki, þá þarf að huga að því hvað á að gera við þær. Hér þarf sérstaklega að skoða hvort pláss sé fyrir ÍLS-veðbréf og e.t.v. viðbótarlán miðað við þau lán sem nú eru áhvílandi.
Helstu möguleikarnir varðandi áhvíland lán:
a) Greiða lánin upp með útborgunargreiðslu kaupanda.
b) Fá yfirdrátt í viðskiptabanka og greiða lánin.
c) Viðskiptabankinn þinn sér um uppgreiðslu lána gegn framsali á ÍLS- veðbréfi/andvirði viðbótarláns o.fl.
d) Lánið flutt yfir á aðra fasteign fyrir gerð kaupsamnings.
e) Hóll móttekur greiðslu frá kaupanda og hefur milligöngu um uppgreiðslu lána.
f) Lánastofnun sér um uppgreiðslu lána gegn framsali á ÍLS-veðbréf og e.t.v. fleiru og tekur fyrir það þóknun skv. sérstökum umboðssamningi.
Eignaskiptasamningur
Lögum samkvæmt eiga að vera til eignaskiptasamningar um öll fjölbýlishús.Fjölbýlishús eða fjöleignarhús eins og það heitir í dag eru þær eignir sem hafa að geyma tvær eða fleiri íbúðir. Nokkuð algengt er að eignaskiptasamningar hafi ekki verið gerðir um fjöleignahús. Þetta er sérstaklega algengt með eldri eignir. Ef eignaskiptasamningurinn hefur ekki verið gerður um eignina þegar hún er seld þarf seljandinn að sjá um að hann sé útbúinn og honum þinglýst á eignina. Mikilvægt er að ganga strax í málin því það getur tekið marga mánuði að klára eignaskiptasamning. Það er húsfélag viðkomandi eignar sem greiðir fyrir gerð samningsins.
Hefur þú fengið afsal fyrir eigninni?
Ef þú átt eftir að fá útgefið afsal fyrir eigninni getum við aðstoðað þig með framhaldið. Ef þú ert hins vegar búin(n) að fá afsal fyrir eigninni en átt eftir að þinglýsa því, þá er ekkert annað að gera en að drífa sig með afsalið í þinglýsingu!
Forkaupsréttur
Sé um að ræða að einhver hafi forkaupsrétt að eigninni þarf strax að fá úr því skorið hvort forkaupsréttarhafi ætli að nýta sér réttinn eða hafna honum. Mjög mikilvægt er að fá skrifleg svör frá forkaupsréttarhöfum þess efnis.
ÍSL- veðbréf og viðbótarlán
Við kaupsamning eru jafnan lán sem kaupandinn og seljandinn skrifa undir. Eftir það fara gögnin í þinglýsingu og eru hjá sýslumanni í ca. tvo daga. Eftir það fara gögnin í Íbúðalánasjóð eða aðra lánastofnun sem sér um að greiða inn á reikning sem getið er um á bréfinu og sérstakri yfirlýsingu sem fyllt er út við kaupsamning. ATH! Íbúðalánasjóður greiðir ekki út fyrr en fimm dögum eftir að ÍLS- veðbréfið var upphaflega gefið út.
Uppgjör kostnaðar, vaxta, fasteignagjalda, hússjóðs o.fl.
Ef kaupandi yfirtekur lán frá seljanda miðast yfirtakan við afhendingardag eignarinnar. Fyrsti gjalddagi kaupanda er næsti gjalddagi lánsins á eftir afhendingu. Seljanda ber því að greiða áfram af láninu þó svo kaupsamningur hafi verið undirritaður, alveg fram að afhendingu. Ef stutt er í afhendingu er hægt að gera upp vexti af yfirteknum lánum við kaupsamning en annars er það geymt fram að afsali. Við kaupsamning er þó mikilvægt að hafa í huga að upphæð yfirtekinna lána breytist fram að afhendingu og lokagreiðsla hækkar/lækkar í samræmi við það. Kaupandi greiðir einnig fasteignagjöld og hússjóð frá afhendingu og er þetta sérstaklega gert upp við kaupsamning og þá er skýrt tekið fram hvenær kaupandi byrjar að greiða fasteignagjöld.
Framkvæmdir á vegum húsfélags
Kaupendur íbúða í fjöleignahúsum bera kostnað af framkvæmdum sem ráðist er í eftir að kauptilboð hefur verið samþykkt og á yfirlýsing húsfélags að bera með sér hvaða framkvæmdir þá eru. Seljendur skulu vera skuldlausir við hússjóð og framkvæmdasjóð en inneign í sjóðunum fylgir hinni seldu eign.
Tilboð gert með fyrirvara um samþykki lánastofnunar.
Öll tilboð þar sem gert er ráð fyrir útgáfu ÍLS-veðbréfs eða annars fasteignaveðbréfs, með veði í eigninni, eru gerð með fyrirvara um samþykki lánveitanda. Það gildir líka um yfirtekin lán. Frá því að gögn berast lánastofnun er algengur afgreiðslutími hjá stofnuninni tvær vikur. Íbúðarlánasjóður og aðrar lánastofnanir taka ekki kauptilboð til skoðunar nema öll nauðsynleg skjöl séu fyrirliggjandi. Þegar kauptilboðið og greiðslumatið hefur verið yfirfarið og málið samþykkt er hringt í okkur á Hóli. Við náum þá í veðbréfið/yfirlýsingu um yfirtöku og boðum kaupanda og seljanda til undirritunar kaupsamnings.
Ef einhverjar spurningar koma upp í hugann varðandi fasteignaviðskiptin þá hafið endilega samband við okkur og við munum að sjálfsögðu gera okkar besta til þess að aðstoða! Þegar kemur að kaupsamningi er það samningadeild Hóls sem tekur við, síminn þar er 595-9013.
Hjartanlega til hamingu - starfsfólk Hóls