Samkvæmt núgildandi lögum er ekki heimilt að ganga frá kaupsamningi nema fyrir liggi (útfyllt) yfirlýsing húsfélags. Yfirlýsingin á að upplýsa kaupendur um greiðslu hússjóðs, væntanlegar framkvæmdir, þegar ákveðnar framkvæmdir, úttektir á húsinu, penningarlegar inneignir o.fl.
Venjan er að við skoðun á eign þá afhendir fasteignasali seljanda þessa yfirlýsingu, samkvæmt lögum þarf þessi yfirlýsing að liggja fyrir frá upphafi söluferills. Hægt er að nálgast eyðublað hér fyrir neðan. Þú þarft svo bara að biðja gjaldkera/formann húsfélags að fylla yfirlýsinguna út samviskusamlega og koma henni til skila sem allra fyrst.
Í litlum fjöleignahúsum (t.d. tví-, þrí-, eða fjórbýlum) ber það stundum við að ekki er til sérstakt húsfélag. Þá fyllir seljandi út yfirlýsinguna og undirritar hana ásamt a.m.k. einum meðeiganda sinna, en helst öllum, og skilar til fasteignasalans.
Smelltu hér til að sækja yfirlýsingu húsfélags
(PDF skjal 35,1 kb)