Gjaldskrá

Gjaldskrá fasteignasölunar Hóls

 

Skv. 9. gr. laga nr. 99/2004 um fasteigna-, fyrirtækja- og skipasölu skal í samningi um þjónustu koma skýrt fram hver sé þóknun fasteignasala og hvernig hún sé ákveðin. Þá skal í sölusamningi koma fram hver sé útlagður kostnaður viðsemjanda.

 

ALMENNT UM ÞÓKNUN

 

1.1.

Gjaldskrá þessi gildir nema um annað hafi verið samið, sbr. söluumboð eða sérstakur samningur hér að lútandi. Allar upphæðir í gjaldskrá þessari eru án 24,5% virðisaukaskatts nema annað sé sérstaklega tekið fram. Virðisaukaskattur bætist því við fjárhæðina þegar reikningur er gerður. Þegar þóknun er ákvörðuð sem hlutfall af söluverði leggst virðisaukaskattur ofan á það hlutfall.

 

1.2.

 

Ákvörðun þóknunar mótast af þeim fjárhagslegu hagsmunum sem tengjast því verki sem unnið er. Söluþóknun innifelur gerð kauptilboðs, kaupsamings og afsals. Sé unnið að verki, þar sem ekki er sérstaklega samið um þóknun, skal þóknunin fyrir verkið ákvörðuð samkvæmt tímagjaldi. Þegar þóknun er ákvörðuð samkvæmt tímagjaldi skal tímaskrá fylgja reikningi.

 

1.3.

Skrá sú sem hér fer á eftir er leiðbeinandi um endurgjald og sé um það samið má víkja frá henni til hækkunar eða lækkunar. Fyrir kaup og sölu fasteigna greiðist aldrei lægra gjald en 159.900 kr. auk vsk.

 

KAUP OG SALA

 

2.1.

A. Sala fasteigna og skipa.

 

a) Sala fasteigna og skráðra skipa sem eru í almennri sölu: 2,5% af söluverði auk vsk.

b) Sala fasteigna og skráðra skipa sem eru í einkasölu: 1,95% af söluverði auk vsk.

c) Aðstoð við kaup fasteigna og skráðra skipa: 1% af söluverði auk vsk.

d) Sala félaga og atvinnufyrirtækja: 5%  af heildarsölu, þ.m.t. birgðir auk vsk.

e) Sala bifreiða sem settar eru upp í kaupverð fasteigna: 2% af söluverði auk vsk., en þó aldrei lægri en kr. 40.000.- auk vsk.

f)  Endursala eignar sem áður hefur verið seld í makaskiptum: 1,5% af söluverði auk vsk.

g) Sala sumarhúsa: 5% af söluverði auk vsk. og gagnaöflunar.

 

B.  Makaskipti

 

a) Við makaskipti er þóknun samkv. því er fram kemur kemur í grein 2.1. A lið. Hafi önnur hvor eignin hvergi verið til sölu skal þóknun vera 1.8% af söluverði þeirrar eignar auk vsk.

b) Hafi eign sem boðin er í makaskiptum verði í einkasölu hjá öðrum fasteignasala skal sá fasteignasali einn taka söluþóknun vegna þeirra eignar samkvæmt söluumboði, enda áriti hann og ábyrgist eigin kaupsamning.

 

2.2.

Þóknun fyrir skjalagerð og frágang við eignaskipti þegar hvorug eignin er á söluskrá og kaup hafa átt sér stað fyrir utan fasteignasölunnar er 1% af söluandvirði fasteignar og skráðs skips auk vsk., en 5% af söluverði lausafjár auk vsk. en þó aldrei lægri en kr. 50.000.- auk vsk.

 

2.3.

Þóknun fyrir gerð einstaks kaupsamnings eða afsals er að lágmarki kr. 50.000 kr. auk vsk.

 

ÝMIS SKJALAGERÐ OG RÁÐGJÖF

 

3.1.

Þóknun fyrir að fara yfir og athuga samninga og skjöl við sölu eða kaup fasteigna og skipa eða annarra eigna sem fasteignasali, lögmaður eða annar hefur gert er samkvæmt tímagjaldi.

 

3.2.

Í þeim tilvikum sem gerð veðleyfa, veðbandslausna, umboða, skuldabréfa og tryggingarbréfa tengist ekki kaupsamningsgerð er þóknun kr. 5.500.- auk vsk.

 

3.3.

Þóknun fyrir munnlega ráðgjöf og leiðbeiningar er samkvæmt tímagjaldi.

 

SKOÐUN OG MAT FASTEIGNAR

 

Fyrir verðmat á íbúðarhúsnæði sé fasteign ekki sett í sölu reiknast þóknun kr. 12.048.- auk vsk eða samtals 15.000 kr. Fyrir skoðun og mat á atvinnuhúsnæði greiðist eftir tímagjaldi en þó að lágmarki kr. 35.000.- auk vsk.

 

LEIGA FASTEIGNA

 

5.1.

Þóknun fyrir gerð leigusamnings um einstakt íbúðarhúsnæði skal vera gjald kr. 25.000.- auk vsk. auk kostnaðar við gagnaöflun.

 

5.2.

Þóknun fyrir gerð leigusamnings um atvinnuhúsnæði skal vera grunngjald kr. 45.000.- auk vsk. auk tímagjalds sem fer í viðtöl og gagnaöflun.

 

5.3.

Þóknun fyrir að annast milligöngu um að koma á leigusamningi skal samsvara mánaðarleigu hins leigða auk virðisaukaskatts.

 

5.4.

Sé leigusamningur gerður til fimm ára eða lengri tíma skal þóknunin samsvara tveggja mánaða leigu auk virðisaukaskatts.

 

5.5.

Sé leigusamningur gerður til 10 ára eða lengri tíma er áskilnaður um hærri þóknun en að ofan greinir og skal sérstaklega um það samið.

 

EIGNAUMSÝSLA OG SKULDASKIL

 

Þóknun fyrir vinnu við eignaumsýslu og gerð samninga um skuldaskil er samkvæmt tímagjaldi, sbr. kafla 8.0. Taki fasteignasalan við fjármunum sem notast til skuldaskila greiðist fyrir það samkv. tímagjaldi en þó að lágmarki kr. 25.000.- auk vsk.

 

ÝMIS ÁKVÆÐI

 

7.1.

Kaupandi fasteignar greiðir fast gjald kr. 29.900.- (með vsk). fyrir þjónustu fasteignasölunnar sem m.a. innifelur ýmis konar ráðgjöf og aðstoð við kauptilboðsgerð, öflunar greiðslumats, þinglýsingarmeðferð kaupsamnings, afsals og allra veðskjala, sendiferða, aðstoð við veðflutninga (ef við á) og lögbundina verkefna s.s. gallamála sem upp kunna að koma og aflýsinga á lánum. Ef kaupandi óskar þess að sjá um þinglýsingarmeðferð sjálfur á hann kost á því og greiðir þá eigi fyrir þá þjónustu.

 

7.2.

Seljandi fasteignar greiðir fast gjald kr. 24.278.- (með vsk) vegna öflunar gagna um eignir, svo sem vegna veðbókarvottorða, ljósrit teikninga og ýmissa skjala. Sé eignin ekki seld hjá fasteignasölunni Hóli greiðir seljandi kr. 14.318.- (með vsk) fyrir öflun gagna og 15.000 kr. (með vsk) skoðunargjald.

 

7.3.

Seljandi fasteignar greiðir fast gjald kr. 4.856.- (með vsk.) fyrir skráningu eignar á internetið. Þá greiðist fast gjald fyrir ljósmyndatöku 10.000 kr. auk vsk.

 

7.4.

Kostnað við gerð og birtingu auglýsinga skal viðskiptamaður greiða samkvæmt gjaldskrá viðkomandi auglýsingamiðils hverju sinni. Heimilt er að óska eftir greiðslu fyrir útlagðan kostnað vegna auglýsinga mánaðarlega.

 

TÍMAGJALD

 

8.0.

Tímagjald fyrir vinnu löggilts fasteignasala er kr. 10.000.- auk vsk.